100 daga hátíð

Fyrsti bekkur hélt upp á 100 daga skólagöngu sína með einstaklega skemmtilegum og eftirminnilegum degi. Hátíðin hófst með heimsókn á bókasafnið þar sem Lilja tók á móti hópnum. Þar fengu nemendur að njóta notalegrar stundar undir leiðsögn Lilju. 

Að því loknu fór 1. bekkur um borð í varðskipið Þór, sem var sannkallað ævintýri fyrir alla. Sérstaklega skemmtilega vildi til að Landhelgisgæslan bauð nemendum í heimsókn í tilefni af 100 ára afmæli gæslunnar, sem gerði daginn enn hátíðlegri og viðeigandi við 100 daga þemað.  

Að heimsókn lokinni þá var opið hús fyrir ættmenni, mættu margir þar og nutu veitinga sem nemendur höfðu bakað í heimilisfræði hjá henni Systu okkar. Dagurinn var fljótur að líða og má svo sannarlega segja að allir nutu sín og eiga örugglega eftir að minnast þessa dags með sínu fólki.  

Við þökkum Systu heimilisfræðikennara fyrir hjálpina við baksturinn. Þökkum einnig þeim sem gáfu sér tíma til að kíkja á okkur og fagna deginum. Og að síðustu þökkum við Lilju á bókasafninu og Landhelgisgæslunni  kærlega fyrir hlýjar móttökur og eftirminnilega upplifun. 
Fleiri myndir inni á myndasafni 2025-2026.

 Hér má sjá frétt frá Landhelgisgæslunni.