- Skólinn
- Nám & kennsla
- Foreldrar
- Stoðþjónusta og Farsæld barna
- Myndir
- Eldhamrar
- Skólablað og verkefni
Fyrr í vetur voru nemendur að vinna í verkefni sem kallast Betra líf, verkefnið er stórt þemaverkefni þar sem nemendur byrjuðu á að vinna nokkur minni verkefni sem tengdust vissum hugtökum s.s. sjálfbærni, hreinu lofti, fátækt, hungri, barnasáttmála sameinuðu þjóðanna, heimsmarkmiðum sameinuðu þjóðanna, samfélagi, þjóðfélagi og náttúruvernd. Lokaverkefnið var svo að nemendur unnu saman í þremur hópum þar sem þau byrjuðu á því að skipuleggja sitt eigið samfélag þar sem þau áttu að hafa efnið sem þau höfðu verið að vinna með til hliðsjónar og áttu að passa uppá það í samfélaginu sínu. Þau bjuggu til líkan af samfélaginu sínu, kynningu og svo kynningarbækling, og loksins þriðjudaginn 28. apríl buðu nemendur foreldrum á kynningu á samfélagi sínu og ákváðu að hafa með því Pálínuboð. Kynningin gekk mjög vel og voru allir ánægðir með þetta.
Fleiri myndir inni á myndasíðu.