Dagur barnabókarinnar

Á hverju ári gefur barnamenningarfélagið IBBY öllum grunnskólabörnum á Íslandi smásögu í tilefni af degi barnabókarinnar sem er í dag, miðvikudaginn 8. apríl. Í ár var það Hjalti Halldórsson rithöfundur sem fékk þann heiður að semja sögu í tilefni dagsins en krakkarnir í Grundarfirði þekkja Hjalta vel og hans frábæru bækur, enda var hann gestur á bókaviðburðinum þeirra árið 2024 og mætti þá með bækurnar Hinn eini sanni jólasveinn og Bannað að vekja Grýlu.
Smásagan sem Hjalti samdi fyrir þennan dag barnabókarinnar heitir Hetja dagsins og hann flutti hana sjálfur á Rás 1 kl. 9.05 í þættinum Segðu mér.  Söguna verður hægt að finna á vefsíðu IBBY og við hvetjum ykkur til að finna þáttinn og hlusta.  Takk fyrir okkur Hjalti, krakkarnir voru sammála um að sagan væri bæði spennandi og ferlega fyndin.
Á meðfylgjandi mynd má sjá nemendur 7. bekkjar sem hlustuðu á upplestur Hjalta í línulegri dagskrá Rásar 1 í útvarpinu.