- Skólinn
- Nám & kennsla
- Foreldrar
- Stoðþjónusta og Farsæld barna
- Myndir
- Eldhamrar
- Skólablað og verkefni
Mikið var dansað hér í skólanum í síðustu viku þegar Sara Rós Jakobsdóttir og Nicolo Barbizi íslandsmeistarar í samkvæmisdönsum voru með danskennslu fyrir nemendur. Allir nemendur skólans ásamt Eldhamranemendum tóku þátt í kennslunni og var endað á opna æfingu á föstudeginum. Sáum við marga góða takta hjá nemendum. Sara og Nicolo sýndu okkur líka einn dans og voru flest allir dolfallnir yfir þeim. Fleiri myndir inni á myndasíðu.