Fjallaferð

Nemendur unglingadeildar Grunnskóla Grundarfjarðar lögðu land undir fót á föstudaginn síðasta þegar þau héldu í gönguferð inn í fallega náttúru Grundarfjarðar.
Gangan hófst inn í Grundarbotni þar sem hópurinn skiptist í tvær leiðir. Annar hópurinn skoðaði svæðið og gekk síðan til baka í skólann, en hinn hélt áfram upp að Vatnsborg þar sem tækifæri gafst til að busla og baða sig í fersku fjallavatni – mikið stuð og svalandi hressing á góðviðrisdegi!
Á niðurleiðinni var vaðið yfir Grundará og nemendur stoppuðu til að skoða hinn tignarlega Grundarfoss. Þeir sprækustu létu ekki þar við sitja heldur héldu áfram með fjallinu inn í Arnardal, yfir Kverná og komu við á Gráborg áður en gengið var heim í skólann.
Dagurinn var bæði skemmtilegur og styrkjandi, þar sem náttúran og félagsskapurinn skiptu meginmáli. Slíkir dagar eru dýrmæt áminning um hversu mikilvæg útivist og hreyfing eru í skólastarfi – og hvað við eigum fallega náttúru allt í kringum okkur.
Fleiri myndir inni á myndasafni.