Fjallganga 6. bekkur

Föstudaginn 30 maí fóru nemendur 6. bekkjar ásamt umsjónarkennara í fjallgöngu. Gengið var frá skólanum reiðveginn að Nónfossi, þar var gengið upp með fossinum upp í gilin sem eru þar fyrir ofan. Kíkt var inní undraveröld sem gilin þar eru og gengið upp þau. Áður en farið var inní gilin þá var skellt sér í vaðskó/inniskó/sokka þar sem það þurfti að vaða til að komast áfram upp gilin. Allir skemmtu sér mjög vel og voru glöð með daginn, þegar komið var til baka eftir 8 km göngu. Fleiri myndir inni á myndasíðu merkt Fjallganga 6. bekkur.