Fundur á vegum Rannsókna og greiningar

Á miðvikudag í næstu viku þann 9. desember kl 14:00 til 15:00 verður haldinn rafrænn upplýsingafundur Rannsókna og greiningar í samstarfi við sveitarfélögin. Fundurinn fjallar um foreldrahlutverkið, líðan ungmenna og aðgerðir á tímum heimsfaraldurs.
Fundurinn fer fram í formi fyrirlestra og hafa þátttakendur kost á að senda inn skriflegar fyrirspurnir gegnum vefspjall meðan á fundinum stendur. Með okkur verða Salvör Nordal umboðsmaður barna og Pálmar Ragnarsson sem stýrir fundinum.
Þátttaka er ókeypis og opin öllum. Skráningu á viðburðinn og frekari upplýsingar má finna í viðhengi og á eftirfarandi hlekk