Jólabókaflóð barnanna 2026

Jólabókaflóð barnanna fór fram í Samkomuhúsi Grundarfjarðar í gær, miðvikudaginn 25. nóvember. Viðburðurinn er haldinn af skólabókasafni Grunnskólans í Grundarfirði í samstarfi við leshópinn Kött úti í mýri og fór nú fram í þriðja sinn.
Að þessu sinni voru það rithöfundarnir Arndís Þórarinsdóttir, Yrsa Þöll Gylfadóttir, Felix Bergsson og Vilhelm Anton Jónsson til Grundarfjarðar sem mættu í Grundarfjörð og settust í pallborð með nokkrum nemendum grunnskólans. Heiðursgestur hátíðarinnar var Friðrik Erlingsson rithöfundur, höfundur bókarinnar um Benjamín dúfu. Hann flutti ræðu um mikilvægi skáldskapar og þess að gefa börnum tækifæri til að finna sig í ævintýrum og upplifa samkennd með alls kyns persónum sagna og bóka. En fyrr um daginn heimsótti Friðrik grunnskólann og ræddi við nemendur á unglingastigi sem og nemendur í 6. og 7. bekk en þessir nemendur allir höfðu legið yfir bókinni hans um Benjamín og sköpuðust því fjörugar umræður.
Eftir inngang Friðriks á Jólabókaflóðinu settust rithöfundarnir í sófann einn af öðrum en með hverjum höfundi sátu þrjú börn á sviðinu sem öll voru búin að lesa nýjustu bók höfundarins og voru tilbúin með spurningar fyrir þá.
Kynnar Jólabókaflóðsins voru þau Birkir Jón bæjarstjóri og Berghildur Jónsdóttir en hún var einnig kynnir í fyrra og Birkir Jón því í góðum höndum.
Tónlistarskóli Grundarfjarðar var með óvænt tónlistaratriði undir stjórn Lindu Maríu Nielsen en þau Ísabella Ósk, Jódís Kristín, Bergur Ingi og Sævar Hjalti fluttu nýja útgáfu af laginu „Ég ætla að verða kóngur klár“ úr kvikmyndinni Konungur ljónanna, þar sem Lilja á bókasafninu var búin að semja jólatexta við lagið. Felix Bergsson brá sér í gervi Skröggsins í laginu og söng með krökkunum.
Þetta árið voru það 64 nemendur úr Grunnskóla Grundarfjarðar, 30 fullorðnir einstaklingar úr foreldrasamfélaginu og svo börnin á Drekadeild leikskólans Sólvalla sem tóku þátt í þessu með okkur. 86 bækur voru lesnar, eða samtals 16.764 blaðsíður, og bókaumfjallanir á veggspjöldum eru, þegar þetta er skrifað, orðnar 85. Bókadómarnir hafa verið birtir á Facebook-síðu skólabókasafnsins og eru þar aðgengilegir öllum sem vilja skoða þá og hafa einnig verið sendir til höfunda og bókaforlaga.
Við þökkum frábærar viðtökur en samkomuhúsið fylltist af fólki og stemningin var virkilega góð. Og auðvitað rúlluðu börnin þessu upp og stóðu sig eins og hetjur.
Svo höldum við bara áfram að lesa og segjum: Bókaðu stund fyrir bók!
Fleiri myndir inni á myndasíðu.