Krakkarökkurrokk

Skólakór Grunnskóla Grundarfjarðar tók þátt í tónlistarhátíðinni Krakka rökkur rokk, sem haldin var í Grundarfirði dagana 5.–11. október. Hátíðinni lauk með glæsilegum rokktónleikum þar sem skólakórinn steig á svið ásamt hljómsveit hátíðarinnar.

Það var sannkölluð rokkstemning í loftinu enda var öllu tjaldað til! Ljós og hljóð voru upp á tíu og hljómsveitin stóð sig frábærlega. Krakkarnir í skólakórnum ásamt nokkrum gestasöngvurum fluttu rokklög af miklum krafti og innlifun.

Viðburðurinn var haldinn í samstarfi við Barnamenningarhátíð Vesturlands og var frábært tækifæri fyrir unga söngvara til að upplifa hvernig það er að koma fram með hljómsveit við glæsilegar aðstæður.

Gréta Sigurðardóttir, stjórnandi skólakórsins, var afar ánægð með frammistöðu barnanna.

Þetta var ótrúlega skemmtilegt verkefni og tókst einstaklega vel, sérstaklega þegar haft er í huga hversu stuttan tíma við höfðum til æfinga. Krakkarnir voru alveg stórkostlegir og lögðu sig öll fram. Það er svo gaman að fylgjast með þeim vaxa og dafna með hverjum viðburðinum. Þau verða sífellt öruggari á sviði og það er virkilega gaman að sjá hvað þau njóta þess að koma fram.

Það sýnir sig enn og aftur hversu öflugt og hæfileikaríkt tónlistarfólk leynist meðal nemenda Grunnskóla Grundarfjarðar og nágrenni.

Það eru fullt af myndum inni á myndasafni.