Laus staða kennara

Grunnskóli Grundarfjarðar auglýsir eftir kennara á öll stig skólans.

Meðal kennslugreina er textílmennt, heimilisfræði ásamt bóklegum greinum. Einnig valkennsla á unglingastigi og leiklist.

Starfshlutfall fer eftir samkomulagi

Grunnskóli Grundarfjarðar er 110 nemenda skóli í 1. – 10. bekk. Í húsnæðinu er einnig leikskóladeild fyrir elstu nemendur leikskólans.

Vakin er athygli á stefnu Grundarfjarðarbæjar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

 

Að annast kennslu nemenda.

Að standa vörð um velferð og nám barnanna.

Að þróa í samvinnu við samstarfsmenn framsækið og faglegt starf með áherslu á fjölbreyttar námsnálganir.

 

Menntunar- og hæfniskröfur

Leyfisbréf sem grunnskólakennari

Reynsla af kennslu í grunnskóla mjög æskileg

Reynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum

Löngun til að vinna í teymi

Hæfni í samskiptum

Frumleiki og sjálfstæði

Brennandi áhugi fyrir kennarastarfinu

 

Laun eru samkvæmt samningi Grundarfjarðarbæjar og KÍ

Umsóknarfrestur er til og með 27.maí 

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Gísli Guðjónsson, skólastjóri í netfangið sigurdur@gfb.is og Anna Kristín Magnúsdóttir, aðstoðarskólastjóri í netfangið annak@gfb.is

4308550