Litahlaup 2026

Litahlaupið verður 8. september

Áætlað tímaplan:
Upphitun hefst 11:30 í þríhyrningnum
Hlaupið ræst 12:00
LITAHLAUP GRUNNSKÓLA GRUNDARFJARÐAR 2026! Hægt er að taka þátt í viðburðinum með því að vera á litastöð, hlaupa með krökkunum eða vera einhversstaðar við hlaupabrautina með stemmningu og pepp! Hlaupinn verður hringur um Grundarfjörð í hádeginu! Nemendur og starfsfólk Grunnskólans hlakka til að sjá sem flesta.
Hlaupið verður ræst í þríhyrningnum, hlaupaleiðin liggur um bæinn og er 2,5 km. Nemendur hlaupa tvo hringi.
Fyrir gesti er tilvalið að hlaupa einn hring og standa svo við brautina eða á litabombustöð. Eða vera allan tímann við brautina/litabombustöð og hvetja! Þitt er valið!