Lýsuskarð

Föstudaginn 11. september gengu 23 nemendur yfir Lýsuskarð.
Farið var með rútu að Lýsuhóli þar sem lagt var upp í 13km göngu með 690m hækkun yfir fjallgarðinn niður í Grundarbotn.
Gangan gekk vel þó að á brattan væri að sækja fyrstu 3 kílómetrana.
Með í för voru Hallfríður, Kasia og Þorsteinn.
 
Veðrið var ágætt, hægur vindur en skýjað. Á leiðinni lenti hópurinn í vænu hagléli sem stytti fljótlega upp og við tók blíðviðri þegar komið var yfir í Eyrarsveitina.
Fleiri myndir inná myndasíðu.