Næsta vika

Við höldum áfram að gæta að sóttvörnum og ætlum að verja nemendur og starfsmenn okkar fyrir smiti í skólanum. Liður í því er að takmarka umgengni utanaðkomandi aðila inn í skólahúsnæðið. Því munu engir teymisfundir fara fram inni í skólahúsnæðinu 5.-9. október og jafnvel lengur. Haft verður samband við þá foreldra/forráðamenn sem eiga bókaðan fund í skólanum í vikunni og þeim boðinn rafrænn fundur, eða frestun.
 
Einnig verður takmarkaðar heimsóknir utanaðkomandi aðila til okkar og biðjum um gott samstarf um það.
Ekki verða breytingar á starfsemi Tónlistarskóla, Eldhamra eða Grunnskóla Grundarfjarðar. Lögð verði áhersla á einstaklingsbundnar smitvarnir eins og kostur er.
Við biðjum þá sem ekki þurfa nauðsynlega að eiga erindi við starfsfólk og nemendur, að virða þetta.
 
Gerum þetta saman.