Opið gróðurhús

Opið hús í gróðurhúsinu
Nemendur í 3.–4. bekk stóðu fyrir opnu húsi í gróðurhúsinu þar sem bæjarbúum var boðið að koma og skoða afrakstur ræktunarinnar. Nemendur sýndu gestum plönturnar sem þeir hafa lagt mikla vinnu í að rækta og sögðu frá verkefninu.
Gestum gafst einnig kostur á að taka með sér plöntur heim og nutu þær mikilla vinsælda. Opið hús heppnaðist afar vel og var gaman að sjá hve margir lögðu leið sína í gróðurhúsið til að kynna sér starf nemenda.
Nemendur stóðu sig frábærlega sem gestgjafar og voru stoltir af því að sýna gestum árangur vinnu sinnar.