Óskilamunaverkefni

4. bekkur fór í það að vinna verkefni í tengslum við óskilamunina sem safnast saman hér í skólanum. Verkefnið er það sama og unnið var á síðasta skólaári í tengslum við Grænafánann. 

Við fórum og náðum í óskilamunina sem safnast höfðu frá því að skólinn byrjaði. Allt var sett í hrúgu sem síðan var flokkað niður eftir því hvort um var að ræða sokka, vettlinga, húfur, jakka, buxur og fl. Þegar það var búið var tekinn hver flokkur talinn saman og síðan tekinn saman kostnaður við hvað hver og einn flokkur kostar. Eftir að sú vinna var búin tókum við merktan fatnað og komum honum til skila til eigenda sinna, eitthvað af óskilamununum tilheyrðu nemendum í bekknum. Við tókum nokkrar myndir af ferlinu og af óskilafatnaðinum sem fylgja með.  

Við bjuggum til veggspjöld sem sýna bæði kostnað og fjölda óskilamuna sem voru.  

Okkur finnst auðveldast að týna vettlingum, sokkum og húfum. 

Kannast kannski einhver við fatnað sem er á myndunum? 

Við viljum endilega að óskilamunirnir komist til eigenda sinna, og minnum á að það skiptir máli að merkja fötin. Foreldrar verið dugleg að kíkja í skúffurnar undir stiganum, því við viljum að fötin komist til skila.  

Það kom okkur á óvart að andvirði óskilamunanna var ca. 700.000 kr.  

Fleiri myndir eru inni á myndasafni. 

Bestu kveðjur 

4. bekkur