Óskilamunir

Nemendur í 4. bekk í Grunnskóla Grundarfjarðar tóku nýverið til við að fara yfir óskilamuni skólans. Þar kom í ljós að flíkurnar voru alls 420 talsins, en einungis 53 þeirra voru merktar með nafni eiganda. Nemendur 4. bekkjar sáu um að skila merktum flíkum til réttra eigenda og lögðu þannig sitt af mörkum til að draga úr sóun.

 Áætlað verðmæti óskilamunanna nemur rúmum 900.000 krónum, sem undirstrikar mikilvægi þess að merkja fatnað og huga að ábyrgri meðferð eigna. Verkefnið tengist vel vinnu skólans að Grænfánanum, þar sem áhersla er lögð á sjálfbærni, endurnýtingu og umhverfisvitund.

 Með þessu verkefni sýndu nemendur frumkvæði, ábyrgð og umhyggju fyrir bæði umhverfinu og skólasamfélaginu. 

Fleiri myndir inni á myndasafni.