- Skólinn
- Nám & kennsla
- Foreldrar
- Stoðþjónusta og Farsæld barna
- Myndir
- Eldhamrar
- Skólablað og verkefni
Fimm nemendur í Grunnskóla Grundarfjarðar tóku þátt í Pangeu stærðfræðikeppninni í febrúar sl. Keppnin er fyrir alla nemendur í 8. og 9. bekk grunnskóla. Í ár tóku 4694 nemendur þátt úr 62 skólum. Nemendur höfðu val um að taka þátt. Markmið keppninnar er að vekja áhuga hjá ungu fólki á stærðfræði, hvetja þau sem halda að stærðfræði sé of erfið til dáða með því að sýna þeim að þau geti afrekað mikið ef þau reyna og hvetja efnilegustu nemendurna til áframhaldandi afreka. Keppnin er haldin í yfir 20 löndum í Evrópu. Undankeppni var haldin í febrúar og komust allir fimm nemendur skólans áfram úr fyrstu umferð. Í annarri umferð sem var haldin í mars var einn nemandi skólans, Sævar Hjalti Þorsteinsson sem komst áfram. Hann er einn af 97 nemendum sem munu keppa í úrslitum sem verða haldin laugardaginn 18. apríl í Reykjavík. Það er gaman að sjá hversu mikinn áhuga nemendur hafa á keppninni og verður gaman að fylgjast með Sævari í úrslitunum.