Skemmtileg hreyfing á morgnana hjá 1. og 2. bekk!

Það er mikil gleði og fjör á morgnana hjá yngstu krökkunum okkar. Þessa dagana erum við að prófa okkur áfram með nýjar og skemmtilegar hreyfistundir í 1. og 2. bekk. Hugmyndin er einfaldlega að byrja daginn með bros á vör og fá smá aukna orku inn í skólastarfið.
 
Við byrjum á því að vekja líkamann, teygja aðeins úr okkur og gera léttar æfingar til að komast í gang. Þegar allir eru tilbúnir tekur við fjölbreytt hreyfing þar sem fjörið ræður ríkjum. Krakkarnir taka meðal annars þátt í stoppdansi, gera styrkaræfingar og herma eftir dýrum með miklum tilþrifum. Þessar æfingar eru frábærar til að kalla fram hlátur og koma öllum í gott skap.
 
Til að róa okkur niður aftur endum við hverja hreyfistund á stuttri og þægilegri slökun. Slökunin hjálpar krökkunum að finna ró og einbeitingu áður en hefðbundið nám hefst.
 
Þetta nýja fyrirkomulag er að ganga virkilega vel og það er ótrúlega gaman að fylgjast með þessum hressa hópi á morgnana. Það verður spennandi að sjá hvaða áhrif þetta hefur á framhaldið og skóladaginn hjá þessum flottu nemendum okkar!
 
Fleiri myndir inni á myndasíðu.