Föstudaginn 10. apríl héldum við undankeppni fyrir Skólahreysti. Sett var upp hraðabraut sem nemendur kepptu í, auk þess sem keppt var í upphýfingum, dýfum, armbeygjum og hangi.
Allir stóðu sig ótrúlega vel og fjölmenntu aðrir bekkir í stúkuna til að hvetja keppendur áfram. Stemningin var frábær.
Í lokin fengu yngri bekkirnir að prófa brautina, sem vakti mikla lukku.
Þeir sem munu keppa fyrir hönd skólans í ár eru:
- Hans Bjarni og Hrafney í hraðabraut
- Brynjar í upphýfingum og dýfum
- Diljá í armbeygjum og hangi
Varamenn verða Rakel og Daniel.
Fleiri myndir inni á myndasíðu.