Teiknimyndasögur

"Núna eru teiknimyndasögur í aðalhlutverki á skólabókasafninu og nemendur tæta í sig gamlar sögur af Ástríki og Steinríki, Tinna, Viggó Viðutan, Lukku Láka og Sval og Val. Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt og margar áhugaverðar umræður sem hafa skapast í kringum þessar gömlu hetjur bókmenntanna. Nemandi í 7. bekk mætti svo á skólabókasafnið á dögunum og sýndi nemendum og Lilju frumsamda teiknimyndasögu sem hann gerði sjálfur, skrifaði texta, teiknaði myndirnar og útbjó bókina. Svona framtak og sköpun er algjörlega til fyrirmyndar og það er staðreynd að teiknimyndaformið telst vera eitt af flóknustu  formum í bókmenntum, það þarf að túlka svipbrigði, sjónarhorn, rými, tímaröð milli ramma og það sem er ósagt milli mynda. Þetta er því alls ekki auðvelt að gera, svo úr verði saga sem sögð er í samhengi en Benjamín Æsir er með þetta alveg á hreinu.  Það verður gaman að sjá hvort þessi ungi listamaður heldur áfram á þessu sviði, hæfileikarnir eru svo sannarlega til staðar. Við óskum honum til hamingju með þessa frábæru teiknimyndasögu sem ber titilinn The Deadly 7  og er alveg hreint æsispennandi."

Fleiri myndir inni á myndasafni.