- Skólinn
- Nám & kennsla
- Foreldrar
- Stoðþjónusta og Farsæld barna
- Myndir
- Eldhamrar
- Skólablað og verkefni
Mikil vinna hefur verið lögð í undirbúning síðustu daga og var afraksturinn sýndur á opnu húsi fimmtudaginn 26. mars 2026.
Þemað var fjölmenning og voru tekin fyrir lönd sem nemendur tengjast. Hvert land var með sinn þjóðarrétt til smökkunnar og unnið var með sérkenni hvers lands.
Allir stóðu sig frábærlega og var sýningin glæsileg. Þökkum öllum sem aðstoðuðu við að koma með muni og upplýsingar um löndin. Gaman þegar allir vinna svona vel saman, nemendur, starfsfólk og foreldrar.
Fleiri myndir inni á myndasíðu "Þemadagar mars 2026" - Þökkum kærlega fyrir viðtökurnar.
Á morgun er svo síðasti kennsludagurinn fyrir páskafrí - Kennsla hefst skv stundarskrá þann 7.apríl -
Gleðilega páska