Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar

Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar var haldin hér í grunnskólanum í gær, þriðjudaginn 17. febrúar. Þátttakendur í þessari keppni eru ávallt nemendur í 7. bekk og eru þau búin að leggja gríðarlega mikið á sig við æfingar síðustu vikur og daga. Öll stóðu þau sig með stakri prýði í keppninni í gær og magnað að sjá hvað þau voru hugrökk enda er það ekki auðvelt að standa frammi fyrir fullum sal af fólki og lesa upp. 
Keppnin var í þremur umferðum, fyrst lásu þau kafla úr bókinni Blokkin á heimsenda eftir þær Arndísi Þórarinsdóttur og Huldu Sigrúnu Bjarnadóttur. Þar á eftir þurftu þau að lesa ljóð í bundnu máli og í síðustu umferðinni lásu þau upp óhefðbundið ljóð. Í dómnefnd sátu þau Gunnar Garðarsson, Ríkey Konráðsdóttir og Guðrún Margrét Hjaltadóttir og voru þau svo sannarlega ekki öfundsverð af hlutverkum sínum enda tók það óvenjulangan tíma fyrir nefndina að komast að niðurstöðu. Eftir gríðarlega jafna keppni urðu úrslitin þau að í þriðja sæti varð Telma Dís Ásgeirsdóttir, í öðru sæti Jódís Kristín Jónsdóttir og sigurvegari keppninnar er Bergur Ingi Þorsteinsson. Stóra upplestarkeppnin verður svo haldin í byrjun mars og fer fram í Snæfellsbæ og þar þurfum við engu að kvíða með þessa glæsilegu fulltrúa. Til hamingju Bergur, Jódís og Telma og til hamingju þið öll í 7. bekk með ykkar frammistöðu í gær, við í grunnskólanum erum að springa úr stolti. 
Fleiri myndir inni á myndasafni.