- Skólinn
- Nám & kennsla
- Foreldrar
- Stoðþjónusta og Farsæld barna
- Myndir
- Eldhamrar
- Skólablað og verkefni
Stóra upplestrarkeppnin var haldin fimmtudaginn 5. mars í Ólafsvíkurkirkju. Eins og áður, mættu til leiks níu keppendur, þrír úr Snæfellsbæ, þrír úr Stykkishólmi og þrír úr skólanum okkar hér í Grundarfirði. Krakkarnir okkar stóðu sig eins og hetjur, fluttu texta og ljóð með stakri prýði og fór það svo að þau skipuðu sér í öll verðlaunasætin þrjú. Bekkjarfélagar þeirra voru mættir til að styðja sitt fólk og fagnaðarlætin sem brutust út þegar úrslit voru kynnt voru eins og á góðum fótboltalandsleik.
Sigurvegari keppninnar árið 2026 er því Jódís Kristín Jónsdóttir, í öðru sæti varð Telma Dís Ásgeirsdóttir og þriðja sætið tók Bergur Ingi Þorsteinsson. Til hamingju Jódís, Telma og Bergur, það er varla hægt að lýsa með orðum hversu stolt við erum af ykkur.
Fleiri myndir koma í myndasafnið eftir helgi.