Vorferð unglingastigs maí 2026

Á vordögum fór unglingastigið í skemmtilega vorferð að Úlfljótsvatni. Þar fengu nemendur að spreyta sig í fjölbreyttum og spennandi verkefnum, meðal annars klifri, bogfimi og vatnasafarí, auk þess sem þau tóku þátt í ýmsum hópeflisleikjum.
Á heimleiðinni var stoppað í sundi og farið var í Ísbúð Huppu. Ferðin heppnaðist afar vel og skemmtu nemendur sér vel.
Fleiri myndir inni á myndasíðu.